Maríu romper

950 kr.

Heimferðarsettið María romperinn. Uppskriftin er síðan 2013, varð til í höfði mér og á prjónunum þegar ég hugsaði til dóttur minnar sem nú er uppkomin og uppskriftin ber því nafn hennar, settið er fíngert og fallegt eins og dóttir mín og því eðlilegt að það beri nafn hennar. Munstrið fann í ég í munsturhefti sem ég hafði keypt og fannst ég þurfa að raða því saman í þessar fallegu, fíngerðu flíkur. Uppskriftirnar er hægt að stækka um eitt númer með því að nota stærri prjón en nota sama fjölda af munstrum sem gefin eru upp, ef vill stækka það enn meira er hægt að nota grófara garn og prjóna en nota sama fjölda af munstrum eins og gefið er upp. Lengdir eru líka afstæðar og fylgja ekki endilega stærðum í prjónauppskriftum og því nauðsynlegt að miða við barnið sem nota á settið.

Garn Drops baby merino, Sandnes Lanett eða sambærilegt sem gefur prjónafestuna 10 cm eru ca 27 lykkjur í garða prjóni á prjóna nr. 3.

Stærð: á nýfætt til þriggja mánaða.
Mál eftir þvott:
Yfirvídd 40 cm
Lengd (frá stroffi á smekk og niður í klof)
30 cm

Vinsælt með þessari vöru