Lorelei heimferðarsett

2.100 kr.

Heimferðarsettið Lorelei samanstendur af setti prjónuðu með skeljamynstri.

Hnepptri peysu sem er prjónuð neðan frá og upp, smekkbuxum prjónaðar skálmar fyrst sem eru sameinaðar og prjónaðar í hring að smekk og böndin eru prjónaðar með fléttu sem heldur sér frá skálmum neðst að enda á böndum, húfu, sokkum og vettlingum.

Í settið er notað garnið Drops baby merino eða sambærilegt sem gefur prjónafestuna 10 cm  27-28 lykkjur í slétt prjóni á prjóna nr. 2,5

Stærð: á nýfætt til þriggja mánaða 56/62, Buxur er hægt að hafa á eldri með því að síkka þær, það sama á við um peysuna þolir vel að síkka ermar og bol fyrir aðeins eldri.

Vinsælt með þessari vöru