Heimferðarsettið María

2.100 kr.

Heimferðarsettið María samanstendur af peysu prjónuð ofan frá og niður, húfu/kjusu, sokkum, vettlingum, buxum. Uppskriftin er síðan 2013, varð til í höfði mér og á prjónunum þegar ég hugsaði til dóttur minnar sem nú er uppkomiin og uppskriftin ber því nafn hennar, settið er fíngert og fallegt eins og dóttir mín og því eðlilegt að það beri nafn hennar. Munstrið fann í ég í munsturhefti sem ég hafði keypt og fannst ég þurfa að raða því saman í þetta fallega og fíngerða sett. Uppskriftin er hugsuð á nýfætt barn sem heimferðarsett en það er auðvelt að stækka um eitt númer með því að nota stærri prjón en nota sama fjölda af munstrum sem gefin eru upp, ef vill stækka það enn meira er hægt að nota grófara garn og prjóna en nota sama fjölda af munstrum eins og gefið er upp. Lengdir eru líka afstæðar og fylgja ekki endilega stærðum í prjónauppskriftum og því nauðsynlegt að miða við barnið sem nota á settið. Þó settið beri stelpunafn þá er það ekki síðra fyrir drengi, en þá myndi ég velja þrengri útgáfuna af peysunni væntanlegt er svo settið í fleirri stærðum.

Garn Drops baby merino, Sandnes Lanett eða sambærilegt ca. 350gr/7 dokkur, 7 tölur, hringprjónn nr. 2,5, málband, nál til að ganga frá endum.

Stærð: á nýfætt til þriggja mánaða.

Prjónafesta: 10 cm eru ca 25-31 lykkjur í garða prjóni á prjóna nr. 2,5

Vinsælt með þessari vöru