950 kr.
Hneppt peysa úr Ægis línunni, prjónuð ofan frá hálsi og niður. Gegnumgangandi í settinu er flétta sem tengir settið saman og minnir kannski á sjóinn og þaðan kemur hugmyndin af nafninu. Mér fannst mig vanta uppskrift af fallegu sparisetti sem gæti tengst 17. Júní en settið er alveg eins fallegt einlitt eins og í fánalitunum og hentar bæði sem spari og til dags daglegra nota. Fólki í kringum mig tengdi í landsleiki og þess háttar.
Garn Dale Lerke, Drops merino extra fine eða sambærilegt sem gefur prjónafestuna 10 cm eru ca 23 lykkjur í garða prjóni á prjóna nr. 3.
Stærðir | |||||
Mál flíkur þvegnar: | |||||
0-3 mán | 3-6 mán | 6-12 mán | 12-18 mán | 18-24 mán | |
Efni í peysu | 100 gr | 150 gr | 150 gr | 200 gr | 200 gr |
Yfirvídd (undir höndum) | 44 cm | 49 cm | 53 cm | 54 cm | 54 cm |
Lengd (hnakka og niður) | 23 cm | 28 cm | 35 cm | 36 cm | 46 cm |
Ermalengd (undir ermi) | 13 cm | 15 cm | 19 cm | 19 cm | 22 cm |