Ægis buxur

950 kr.

Settið Ægir samanstendur af hnepptri peysu, prjónuð ofan frá hálsi og niður. Smekk stuttbuxum, prjónaðar neðan frá og upp. Derhúfu, þar sem byrjað er á því að gera ennisband fram og til baka og lykkjur teknar upp sem síðan eru prjónaðar í hring. Slaufu og sokkum. Gegnumgangandi í settinu er flétta sem tengir settið saman og minnir kannski á sjóinn og þaðan kemur hugmyndin af nafninu. Mér fannst mig vanta uppskrift af fallegu sparisetti sem gæti tengst 17. Júní en settið er alveg eins fallegt einlitt eins og í fánalitunum og hentar bæði sem spari og til dagsdaglegra nota. Fólki í kringum mig tengdi í landsleiki og þessháttar. Þetta er uppskriftin af buxunum eingöngu

Garn Dale Lerke, Drops merino extra fine eða sambærilegt sem gefur prjónafestuna 10 cm eru ca 23 lykkjur í garða prjóni á prjóna nr. 3

Stærðir
Mál flíkur þvegnar:
0-3 mán 3-6 mán 6-12 mán 12-18 mán 18-24 mán
Efni í buxur 100 gr 150 gr 150 gr 150 gr 200 gr
Buxur yfirvídd 41 cm 48 cm 53 cm 58 cm 60 cm
Buxur lengd (mitti og niður) 22 cm 27 cm 31 cm 33 cm 37 cm

Vinsælt með þessari vöru