Loki heimferðarsett

2.100 kr.

Heimferðarsettið Loki samanstendur af peysu prjónaðri ofan frá og niður, sú sama og er í Braga settinu, pokabuxum, prjónaðar frá mitti og niður og með axlaböndum, húfu eins og Bragahúfunni og sokkum sem einnig er hægt að nota sem vetlinga

Prjónað úr Drops baby merino eða sambærilegu sem gefur prjónafestuna 28 lykkjur í slétt prjóni á prjóna nr. 2,5, ca. 300 gr/6 dokkur, ca. 2 dokkur peysa 90 gr, ca. 1 dokka húfa og sokkar 50 gr og ca. 3 dokkur buxur 130 gr. ásamt  5 tölum og 1 dúsk.

Stærð: á nýfætt til þriggja mánaða.

 

Mál Peysa þvegin:

Yfirvídd 22 cm
Lengd (hnakka og niður) 26 cm
Ermalengd munsturkafli 14 cm

 

Mál buxur þvegnar:

Lengd frá mitti niður í klof 24 cm
Vídd þar sem er víðast 35 cm
Skálmar frá klofi og niður 9 cm

 

Húfa vídd 15 cm

sokkar lengd 18 cm vídd 6 cm

Vinsælt með þessari vöru