950 kr.
Skemmtileg og hlý leikskólapeysa í stærðum 2-5 ára. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með þríbanda munstri efst og síðan sléttprjónuð í einum lit bolur og ermar. Prjónuð á prjónastærð 4,5 mm. Garn sem hæfir prjónafestunni miðað við prjóna nr. 4,5 t.d. léttlopi, Alpaka ull frá Sandnes, Drops Air, Drops Nepal.
Stærðir, mál eftir þvott og garnmagn:
2 ára | 3 ára | 4 ára | 5 ára | |
Yfirvídd undir höndum | 63 cm | 67 cm | 71 cm | 76 cm |
Lemgd á bol frá handvegi | 22 cm | 25 xm | 27 cm | 28 cm |
Ermalengd | 23 cm | 26 cm | 28 cm | 30 cm |
Garnþörf aðallitur
Aukalitur 1 Aukalitur 2 |
150 gr
50 50 |
150 gr
50 50 |
200 gr
50 50 |
200 gr
50 50 |
Prjónafesta:
10 cm eru 18 lykkjur í sléttprjóni á prjóna nr. 4,5