2.000 kr.
Heimferðarsettið Maríus samanstendur af peysu prjónuð ofan frá og niður, húfu, sokkum, vettlingum. Hugmyndin af uppskriftinni er tíu ára gömul en uppskriftin gerð nýlega. Munstrið fann í ég í munsturhefti sem ég hafði keypt og fannst ég þurfa að raða því saman í þetta fallega og fíngerða sett. Uppskriftin er hugsuð á nýfætt barn sem heimferðarsett og alveg upp í tveggja ára og það er auðvelt að stækka um eitt númer í viðbót með því að nota stærri prjón en nota sama fjölda af munstrum sem gefin eru upp, ef vill stækka það enn meira er hægt að nota grófara garn og prjóna en nota sama fjölda af munstrum eins og gefið er upp. Lengdir eru líka afstæðar og fylgja ekki endilega stærðum í prjónauppskriftum og því nauðsynlegt að miða við barnið sem nota á settið.
Stærðir
Mál þvegið:
3-6 mán | 6-12 mán | 12-18 mán | 18-24 mán | |
Efni í peysu | 150 gr | 150 gr | 200 gr | 200 gr |
Efni í húfu, sokka og vettlinga | 50 gr + afgangur af peysu | 50 gr + afgangur af peysu | 50 gr + afgangur af peysu | 50 gr + afgangur af peysu |
Yfirvídd (undir höndum) | 50cm | 51 cm | 56 cm | 68 cm |
Lengd (hnakka og niður) | 27 cm | 33 cm | 38 cm | 46 cm |
Ermalengd (undir ermi)
Húfa vídd Sokkar lengd sóla Vettlingar lengd lófa |
19cm
16 cm 10 cm 10 cm |
20 cm
17 cm 11 cm 11 cm |
25 cm
18 cm 12 cm 12 cm |
27 cm
19 cm 13 cm 13 cm |
Prjónafesta: 10 cm eru ca 25-31 lykkjur í garða prjóni á prjóna nr. 2,5