2.100 kr.
Þetta er uppskriftin af kjólnum, buxum við hann og sparisokka við kjólinn. Uppskriftin er síðan 2013, varð til í höfði mér og á prjónunum þegar ég hugsaði til dóttur minnar sem nú er uppkomin og uppskriftin ber því nafn hennar, settið er fíngert og fallegt eins og dóttir mín og því eðlilegt að það beri nafn hennar. Munstrið fann í ég í munsturhefti sem ég hafði keypt og fannst ég þurfa að raða því saman í þessar fallegu, fíngerðu flíkur. Uppskriftirnar er hægt að stækka um eitt númer með því að nota stærri prjón en nota sama fjölda af munstrum sem gefin eru upp, ef vill stækka það enn meira er hægt að nota grófara garn og prjóna en nota sama fjölda af munstrum eins og gefið er upp. Lengdir eru líka afstæðar og fylgja ekki endilega stærðum í prjónauppskriftum og því nauðsynlegt að miða við barnið sem nota á settið.
Efni Drops baby merino, Lanet frá Sandnes eða sambærilegt sem gefur prjónafestuna ca 27 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 3 verða 10 cm.
Stærðir, mál eftir þvott: | ||||
3.-6 mán | 6-9 mán | 9-12 mán | 12-18 mán | |
Yfirvídd undir höndum | 44 | 48 | 56 | 62 |
Lengd (hálsmál og niður) | 33 | 34 | 35 | 44 |
Garnþörf kjóll | 150 | 200 | 250 | 250 |
Garnþörf buxur | 100 gr | |||
Garnþörf sokkar | 50 gr eða jafnvel afgangar af kjól og buxum | |||
Yfirvídd buxur | 56 cm | |||
Lengd (mitti og niður) | 31 cm |