500 kr.
Maríulínan samanstendur af peysu prjónuð ofan frá og niður, hjálmhúfu eða kjusu, sokkum, vettlingum, síðbuxum, stuttbuxum/romper, kjól prjónuðum ofan frá og niður, buxum við kjól ásamt sparisokkum við kjólinn, galla prjónuðum ofan frá og niður og skírnarkjól prjónuðum ofan frá og niður. Upprunalega uppskriftin er síðan 2013, varð til í höfði mér og á prjónunum þegar ég hugsaði til dóttur minnar sem nú er uppkomin og uppskriftin ber því nafn hennar. Munstrið fann í ég í munsturhefti sem ég hafði keypt og fannst ég þurfa að raða því saman í þetta fallega og fíngerða sett. Þessir sokkar voru hannaðir til að nota við kjólinn en er ekki síður fallegir við gallann eða buxurnar í heilsettinu.
3-6 mán | 6-12 mán | 12-18 mán | 18-24 mán | |
Lengd sóla | 10 cm | 11 cm | 12 cm | 13 cm |
Efnismagn | 50 gr | 50 gr | 50 gr | 50 gr |
Efni: garn Drops baby merino eða sambærilegt
Prjónafesta: 10 cm eru ca 27 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 3