950 kr.
Maríulínan samanstendur af peysu prjónuð ofan frá og niður, hjálmhúfu eða kjusu, sokkum, vettlingum, síðbuxum, stuttbuxum/romper, kjól prjónuðum ofan frá og niður, buxum við kjól ásamt sokkum við kjólinn, galla prjónuðum ofan frá og niður með hjálmhúfu, sokkum og vettlingum og skírnarkjól prjónuðum ofan frá og niður. Upprunalega uppskriftin er síðan 2013, varð til í höfði mér og á prjónunum þegar ég hugsaði til dóttur minnar sem nú er uppkomin og uppskriftin ber því nafn hennar. Munstrið fann í ég í munsturhefti sem ég hafði keypt og fannst ég þurfa að raða því saman í þetta fallega og fíngerða sett.
Stærð: á nýfætt til tólf/átján mánaða pokar mismikið eftir aldri og styttist þegar eldist eða líka hægt að lengja í skálmum fyrir eldri börn.
Mál eftir þvott:
Yfirvídd | 56 cm |
Lengd (mitti og niður) | 31 cm |
Efni: Drops baby merino, Lanett frá Sandnes eða sambærilegt
Prjónafesta: 10 cm eru ca 28 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 2,5